Gatasigti fyrir Internetið

Margur hefur tjáð sig um netlöggur og Steingrím J. Sigfússon síðustu daga. Hve margir ætlu séu búnir að horfa á þáttinn? Ég hef ekki ennþá nennt því, enda þykir mér Silfur Egils ekki skemmtilegur þáttur. Út af því þá fór ég og fann ég einn af fáum aðilum sem hefur lagt í það að skrifa orðrétt upp eftir þættinum. Voila

Steingrímur kemur ekki svo rosalega vel út, en ef eitthvað er þá kemur hún Steinunn Valdís ennþá verr út. En báðir aðilar líta ekki út fyrir að hafa mikla þekkingu á tölvumálum.

Lag færslunnar:: An Arrow From the Sun með þungarokkssveitinni Therion. Þetta er flott lag af Lemuria helmingi tvöföldu plötunnar, Lemuria/Sirius B. Lagið opnar fremur afslappað með sópran söngkona sem fær andsvar frá karlakór með bassagítarsplokki undir. Síðan kemur stutt interlude en eftir þann kafla þá kemur flottasti kafli lagsins, Bassi að syngja með þungarokkssveit :D

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Stjórnmálamenn hafa almennt góða hæfileika til að tjá sig um hluti sem þeir skilja ekki.

Ef Kínverjar geta ekki (þrátt fyrir mikla vinnu) stöðvað aðgang sinna landsmanna að Falun Gong vefsíðum, hvernig ættu þá nokkrir aðrir að geta stöðvað aðgang að öðru efni?

Púkinn, 2.3.2007 kl. 09:22

2 Smámynd: Fræðingur

Með góðum öxum og korti af öllum internettengipunktum landsins ;)

Fræðingur, 2.3.2007 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband